Stefnuræða forsætisráðherra - röð flokka og ræðumenn
Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra verður útvarpað og sjónvarpað mánudaginn 4. október 2004, kl. 19.50.
Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð hafa þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi:
Framsóknarflokkur,
Samfylkingin,
Sjálfstæðisflokkur,
Vinstri hreyfingin - grænt framboð og
Frjálslyndi flokkurinn.
Fyrir Framsóknarflokk tala Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvesturkjördæmis.
Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð, Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri og Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.
Ræðumenn verða fyrir Sjálfstæðisflokk: Davíð Oddsson utanríkisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, í annarri umferð og Birgir Ármannsson 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í þriðju umferð.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna- grænt framboð verða Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, í annarri Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.
Fyrir Frjálslynda flokkinn tala í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvesturkjördæmis og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri umferð Gunnar Örlygsson 10. þm. Suðvesturkjördæmis en í þriðju umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis.